Leiðandi í orkuskiptum
EFLA er leiðandi í hönnun innviða fyrir raforkukerfi hérlendis, í Evrópu og víðar. Við erum stolt af því að gegna því mikilvæga hlutverki að tryggja örugga, hagkvæma og skilvirka orkuflutninga við fjölbreyttar aðstæður.

EFLA er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem vinnur á öllum sviðum verkfræði og tækni.
Við búum yfir áratuga reynslu og sköpum framsæknar lausnir með nýsköpun að leiðarljósi.
HECLA, dótturfélag EFLU í Frakklandi, náði framúrskarandi árangri árið 2024. Vöxtur félagsins var mikill og hlutverk þess í orkuskiptum var umtalsvert
EFLA AB sem er staðsett í Stokkhólmi í Svíþjóð átti sitt besta ár í tíu ára sögu fyrirtækisins á liðnu ári.
Glatvarmi frá TDK á Akureyri er nýttur í fyrsta sinn inn á hitaveitukerfi Norðurorku, mikilvægt skref í aukinni orkunýtingu á svæðinu.
Lausnir byggðar á tæknilegri þekkingu gegna mikilvægu hlutverki við að móta sjálfbæra framtíð. Við hjá EFLU höfum yfir 30 ára reynslu af því að aðstoða viðskiptavini við að stýra rekstri á þann hátt að loftslagsáhrifum og öðrum neikvæðum áhrifum á umhverfið sé haldið í lágmarki. Saman vinnum við að sjálfbærum lausnum.
Nýtt og glæsilegt mannvirki, Hús íslenskunnar, hefur risið við Arngrímsgötu í Reykjavík.