Viltu starfa með okkur?

Brosandi konur að tala saman

Kjarni EFLU samanstendur af starfsfólkinu og þekkingu þess. Við leggjum áherslu á að fólki líði vel í vinnunni, njóti jafnréttis og fái tækifæri til framþróunar.

Vinnustaðurinn
Brosandi maður snýr að myndavél, kona og karl snúa baki í myndavél. Grænn bakgrunnur

Störf í boði 3

EFLA leitar að metnaðarfullum og áhugasömum aðila sem hefur brennandi áhuga á mannvirkjagerð til að sinna hönnun og eftirliti með bygginga- og veituframkvæmdum. Um er að ræða starf á Suðurlandi í öflugu fagteymi bygginga. Ef þú hefur auga fyrir smáatriðum, mikla útsjónarsemi og færð ánægju út úr því að vinna í krefjandi og fjölbreyttu umhverfi, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.

Helstu verkefni

  • Eftirlit með byggingaframkvæmdum
  • Eftirlit með veituframkvæmdum
  • Öryggiseftirlit
  • Samningar og eftirfylgni verklegra framkvæmda
  • Byggingastjórn

Hæfniviðmið

  • Háskólamenntun í byggingarfræði, tæknifræði eða byggingarverkfræði
  • Framúrskarandi skipulags- og samskiptahæfileikar
  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi
  • Reynsla af verkefnisstjórnun
  • Byggingastjóraréttindi eru kostur
  • Reynsla af öryggiseftirliti er kostur
  • Reynsla af ACC og sambærilegum verkefnavefjum er kostur
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samvinnu

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar á mannauðssviði EFLU.

Vinnustaðurinn EFLA

EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni. 

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni. 

Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda. 

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.  

EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn

Nánari upplýsingar um stefnur EFLU

Persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda

Um svið og starfsstöðvar EFLU

Við getum boðið upp á störf óháð staðsetningu

Um EFLU

EFLA er þekkingarfyrirtæki með hátt í 50 ára sögu sem og veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina. Hlutverk EFLU er að koma fram með lausnir sem stuðla að framförum viðskiptavina og efla samfélög og er samfélagsleg ábyrgð samofin tilgangi fyrirtækisins. Starfsfólkið er verðmætasta auðlind EFLU og hér starfar hæft og reynslumikið fagfólk með yfirgripsmikla þekkingu. Mikilvægur þáttur í starfsemi EFLU er frelsi starfsfólks til frumkvæðis þar sem hæfileikar þeirra njóta sín til fulls.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

Við vinnum fjölbreytt verkefni í teymum þvert á svið og svæði og leggjum mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land. Í því skyni starfrækjum við öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni þar sem fjórðungur starfsfólks starfar. Auk þess bjóðum við upp á störf óháð staðsetningu þar sem því verður við komið.

Ferli ráðninga

Farið er með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Almennum umsóknum er ekki svarað sérstaklega en þeir sem koma til greina í störf sem losna fá boð um atvinnuviðtal. Allir stjórnendur hafa aðgang að almennum umsóknum á sínu sviði og mega umsækjendur eiga von á að mannauðssvið jafnt og stjórnendur hafi samband vegna umsókna þeirra. 

Almennar umsóknir eru í gildi í sex mánuði frá umsóknardegi og hvetjum við umsækjendur til að sækja aftur um ef þeir hafa ekki heyrt frá okkur að sex mánuðum liðnum.

EFLA er sífellt að leita að áhugasömu og hæfileikaríku starfsfólki. Í umsókninni getur þú valið hvar þú vilt starfa og einnig hvað þú vilt starfa við.

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar mannauðssviðs, mannaudur@efla.is

EFLA leitar að öflugum og metnaðarfullum sérfræðingi í markaðsmálum og viðskiptatengslum til að taka virkan þátt í mótun og framkvæmd markaðsstefnu fyrirtækisins innan teymis markaðssetningar og miðlunar hjá EFLU.

Starfið felur í sér greiningu gagna, þjónustustýringu, hugmynda- og textavinnu, samræmingu markaðsaðgerða innan EFLU og dótturfélaga erlendis, stuðning við viðskiptatengsl og þróun þeirra.

Markaðsstarf EFLU byggir á traustum viðskiptasamböndum og markvissri miðlun sem styður við ímynd fyrirtækisins. Beinar tengingar við viðskiptavini eru veigamiklar í  markaðsstarfinu en einnig er lögð áhersla á öfluga miðlun í gegnum vefsíðu og samfélagsmiðla, þar sem efni er sniðið að ólíkum markhópum og endurspeglar fjölbreytileika og sérfræðiþekkingu EFLU.

Ef þú hefur reynslu og brennandi áhuga á sambærilegum verkefnum viljum við gjarnan heyra frá þér.

Helstu verkefni

  • Mótun og innleiðing áherslna og aðgerða í markaðsmálum EFLU.
  • Ábyrgð á gerð markaðsáætlana og eftirfylgni.
  • Þróun og samræming skilaboða fyrir ólíka markhópa, með áherslu á fyrirtækjamarkað (B2B).
  • Ráðgjöf og stuðningur við starfsfólk EFLU varðandi markaðsmál.
  • Tengiliður við dótturfélög EFLU sem starfa í Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Póllandi og Danmörku varðandi markaðs- og kynningarmál.
  • Þátttaka í viðskiptatengslum og hagnýting CRM-kerfis í markaðsstarfi.
  • Þjónustustýring í tengslum við upplifun viðskiptavina og eftirfylgni.
  • Greining gagna og markaðsrannsókna til að styðja við ákvarðanatöku.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í markaðsfræði, viðskiptafræði, samskiptum eða skyldum greinum.
  • Reynsla af stefnumótun og framkvæmd markaðsstarfs.
  • Frumkvæði, hugmyndaauðgi, sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni.
  • Góð samskipta- og ráðgjafahæfni.
  • Þekking á Microsoft CRM-kerfum og markaðsgreiningum er kostur.
  • Hæfni til að vinna með þverfaglegum teymum og eiga í samskiptum við fjölbreyttan hóp hagsmunaaðila.
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku, bæði í rituðu og töluðu máli.

Nánari upplýsingar veita sérfræðingar í mannauðsteymi EFLU.

Vinnustaðurinn EFLA

EFLA er þekkingarfyrirtæki sem starfar á sviði verkfræði og tækni.

EFLA leggur mikla áherslu á að bjóða upp á nærþjónustu um allt land og starfrækir öflugar starfsstöðvar á landsbyggðinni. Við bjóðum störf óháð staðsetningu svo starfsfólk geti búið í sinni heimabyggð hvar sem er á landinu, unnið í spennandi verkefnum og tilheyrt öflugum teymum. Um fjórðungur starfsfólks EFLU starfar á landsbyggðinni. Við bjóðum upp á afbragðs starfsumhverfi, sveigjanlegan vinnutíma og góðan starfsanda.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði. Gildi EFLU eru hugrekki, samvinna og traust og leggjum við mikið upp úr því að fá til liðs við okkur kraftmikið, jákvætt og metnaðarfullt starfsfólk sem skarar fram úr á sínu sviði.

EFLA er jafnlaunavottað fyrirtæki og hefur unnið frumkvöðlastarf í sjálfbærum rekstri.

Nánari upplýsingar um vinnustaðinn 

Nánari upplýsingar um stefnur EFLU

Persónuverndaryfirlýsing til umsækjenda 

Um svið og starfsstöðvar EFLU