Vind- og straumfræðigreiningar
Sérfræðiteymi EFLU í vindgreiningum hefur víðtæka reynslu í greiningum á veðurfarsgögnum og hermunum með reiknilíkönum sem gerir okkur kleift að skila sérsniðnum lausnum sem styðja við þarfir viðskiptavina okkar.
Hagræðing vindskilyrða
EFLA veitir alhliða þjónustu við vind- og straumfræðigreiningar. Hvort sem markmiðið er að kortleggja vindafar fyrir valkostagreiningu, hagræða hönnun mannvirkja eða samgönguinnviða fyrir vindi, stuðla að öruggri og góðri vindvist í borgarrýmum, tryggja ásættanlega dreifingu á loftborinni mengun eða auka rekstraröryggi og skilvirkni í verkefnum.
Með réttu verkfærunum og sérfræðiþekkingu má leggja áreiðanlegt mat á vinda- og veðurfar fyrir margvísleg verkefni.
EFLA notast við söguleg mæligögn, háupplausna veðurgagnasett, vindflæðislíkön, tölfræðilegar aðferðir og gervigreind til að greina veðurfar. Þannig er hægt að skilja þróun og mynstur í veðurfari og spá fyrir um tíðni sjaldgæfra atvika út frá samspili veðurfars og flókins landslags og umhverfis.
Með tölulegum straumfræðihermunum (CFD) má reikna staðbundið vindflæði á þrívíðu reiknineti í kringum landslag og mannvirki. Þannig fást nákvæmar upplýsingar um m.a. vindhraða, vindátt, hitastig og þrýsting fyrir mismunandi forsendur. Þessar upplýsingar nýtast til að mynda við hönnun á mannvirkjum, skipulagi og samgöngum, en einnig við greiningar á dreifingu á loftborinni mengun frá umferð eða iðnaði og við rekstrarlegar ákvarðanir.
Sérsniðnar lausnir
Sérfræðingar EFLU hafa víðtæka reynslu þegar kemur að greiningu á vindafari og eru greiningar sérsniðnar að þörfum verkefnisins. Sérþekking vindgreiningarteymis EFLU nær yfir breitt svið viðfangsefna á borð við greiningar á fjölfasa flæði í lögnum og vélbúnaði, súrefnismettun í eldiskerjum, staðbundið vindafar og vindþægindi kringum mannvirki, vindafar í flóknu landslagi, greiningu aftakavinda, veðurlíkön og úrvinnslu veðurmælinga.
Innan EFLU eru að auki sérfræðingar á fjölmörgum sviðum, s.s. skipulagsmálum, veghönnun, hafnarverkfræði, raflínuhönnun o.fl. sem vinna náið með vindgreiningarteymi að afmörkun, skipulagningu og túlkun vindgreininga.
Meðal þjónustusviða eru:
- Almenn greining á vindafari út frá sögulegum veðurmælingum og reiknuðum veðurgögnum úr háupplausnar veðurlíkani.
- Greining á vindafari út frá reiknilíkönum sem taka tillit til landslags og umhverfis.
- Greiningar á staðbundnu vind- og hitaflæði í kringum byggingar og önnur mannvirki.
- Greining á árlegum eða árstíðarbundnum áhrifum vinds á notendur (e: pedestrian wind comfort) út frá tölfræðilegum vindgögnum og vindþæginda viðmiðum. Þannig er hægt að leggja mat á öryggi og gæði útisvæða með tilliti til vinds og annarra veðurfarsþátta (t.d. sólargeislun og lofthita).
- Gerð tillagna að úrbótum og mótvægisaðgerðum við núverandi byggingar eða skipulög.
Niðurstaða
Með greiningum á vindafari sem eru sérsniðnar að þörfum verkefna og viðskiptavina er hægt að auka gæði og virði í margvíslegum verkefnum og koma í veg fyrir ýmiskonar vandamál sem geta verið kostnaðarsöm og haft neikvæð áhrif á umhverfi og samfélag.
Áreiðanlegt mat á sögulegu vinda- og veðurfari getur verið ómissandi í frum- og valkostagreiningum á byggingum, samgönguinnviðum og orkuinnviðum, sem og í rekstrarlegum ákvörðunum. Einnig er það grunnforsenda við aðrar verkfræðigreiningar, t.d. á dreifingu á loftborinni mengun eða lykt frá umferð, iðnaði eða landbúnaði.
Hermun á staðbundnu vindafari á smærri skala eykur gæði í hönnun mannvirkja og skipulags. Þannig er hægt að skapa betri vindskilyrði umhverfis byggingar, koma í veg fyrir óæskilega eða hættulega vindstrengi, tryggja öryggi og notkun innganga og hanna hágæða útisvæði. Einnig nýtast þær greiningar í hönnun á skilvirkni náttúrulegrar loftræsingar (bygginga, vegganga og bílakjallara), til að ákvarða staðsetningu á ýmsum stýribúnaði eða til að koma í veg fyrir vindgnauð.